12.11.2007 | 21:58
Bullari kveður.
Þessi tiltekni bullari kveður og fer nú að blogga á eyjunni. Verð væntanlega með sömu munnræpuna þar og hér. Pínu skrýtin tilfinning því það að blogga hér er talsverður hluti af mínum daglegu störfum.
Nú er það nýr vetfangur og spennandi. Eintóm tilhlökkun...
Takk fyrir mig.
Röggi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.11.2007 | 10:03
"fuck the rest"
Ég er af gamla skólanum ,pínulítið. Og kominn á þann aldur að nenna að nöldra yfir því þegar fólk í fjölmiðlum getur ekki komið frá sér óbrjáluðu máli. Þannig er það bara.
Venjulega er um að ræða unglinga sem missa sig í stuðinu og láta allt flakka. Sennilegt að í mínu ungdæmi hafi bara engir unglingar fengið störf í fjölmiðlium eða þá að allt var unnið eftir handritit og því engar misfellur. Kostir og gallar.
Svo háttar til að ég hlusta á bylgjuna á leið til vinnu á hverjum morgni mér til ánægju. Gissur Sigurðsson er af sýnu samstarfsfólki talinn skemmtilegur fýr heyri ég reglulega. Hann er með svona frétta spjall tvívegis í morgunþættinum og getur farið á kostum. Og þá er ekki treyst á handrit, ónei.
Innanhússhúmorinn tekur þá gjarnan völdin og hópurinn skemmtir sér vel og skellir uppúr ótt og títt. Þetta stundum gaman en í morgun gerðist það sem gerist of oft fyrir minn smekk. Gissur missir sig og gleymir því að hann er að tala í útvarp en er ekki í skemmtispjalli á kaffistofunni.
Hann endar eina sniðuga sögu á þessum klassísku oðrum, " fuck the rest" við nokkurn fögnuð. Og ég fór á flug. Má þetta? Verður enginn fúll. Þetta er ekki einsdæmi reyndar hvorki hjá Gissuri né öðrum. Ekki er langt síðan Adolf Ingi ruddi útúr sér brandara um þeldökkan spretthlaupara í beinni útsendingu sem var ekkert minna en rasismi og og dónaskapur um samkynhneigða, í sömu setningunni.
Kannski bara nöldur í mér en þá það. Er af gamla skólanum og vill að menn vandi sig.
Röggi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2007 | 15:19
Megas er snillingur.
Sumir hlutir eru bara á hreinu. Í dag er miðvikudagur og þá er fimmtudagur næstur í röðinni. Þetta er þekkt og breytist lítið. Alveg eins og Megas. Fyrir mér breytist hann harla lítið. Nema þá til hins betra.
Er að hlusta á Frágang, sem er nýjasta eða næst nýjasta afurð Megasar. Ropandi snilld ef ég er spurður. Hef alltaf getað hlustað á hann svo kannski er ekkert að marka það þó ég haldi lítt vatni en þessi diskur er flottur.
Hann er allur fjandinn kallinn. Stundum er hann Kim Larsen og því næst Van Morrisson. Allt menn sem höfða mikið tíl mín. Rígfullorðinn en sjaldan betri. Orginal eðaltöffari og endist betur en hinn eðaltöffarinn okkar þrátt fyrir fjörlegt líferni. Hver fer betur með tungmálið okkar?
Getur verið að einhver hafi ekki uppgötvað snilldina? Aldrei of seint að byrja og alveg upplagt núna. Mátti til með að mæla með honum.
Röggi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.11.2007 | 14:03
Sjálfsagt og eðlilegt.
Þetta hef ég skrifað um áður. Í hvaða viðskiptum tíðkast það að kúnninn fái ekki réttar upplýsingar um verð vörunnar fyrr en hann hefur greitt þær? Matvöruverslanir hafa tekið sér einhverskonar bessaleyfi til þess að vera með þetta furðufyrirbrgiði sem heitir kassaverð. Og svo hilluverð, eða öfugt.
Þetta er í mínum huga fullkomið siðleysi. Þetta stafar hugsanlega af æðinu sem er í því að breyta verðinu. Ég ætla að minnsta kosti að reyna í allan dag að telja mér trú um það frekar en að þessir strangheiðarlegu menn séu að reyna að villa um fyrir mér.
Mér er óljúft að segja það því ég er almennt á móti boðum og bönnum eða handstýringu en ég fer bráðum að sannfærast um að rétt sé að banna þessum kónum að breyta verði innan sama dags svo einhver vegur sé fyrir neytandann að vita hvar hann er að versla inn.
Röggi.
|
Fallist á tilmæli talsmanns neytenda um samræmi hillu- og kassaverðs |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2007 | 22:19
Benitez er gleðigandur.
Flott hjá Liverpool má segja. Er reyndar á því að lið starfsmannafélags pennans í hallarmúla hefði kreist jafntefli út úr hörmulegu lið Besiktas.
Svo verð ég að vera sammála því sem þeir félagar á sýn segja um Benitez enda hef ég sjálfur skrifað lærða grein um manninn. Maðurinn er einfaldlega leiðinlegur. Stundum má vera gaman þó auðvitað sé flott að halda kúlinu.
Ekki alveg óhugsandi að hann kunni sitt fag en virðist leiðast í vinnunni. Stundum held ég að það komi niður í liðinu.
Frábið mér leiðindaskæting frá aðdáendum Liverpool sem finnst þetta viðhorf mitt endurspegla kunnáttuleysi mitt á fótbolta.
Ég er sérfróður...
Röggi.
|
Liverpool skoraði 8 mörk og metsigur á Meistaradeildinni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.11.2007 | 21:37
Davíð í útvarpi.
Minn maður Davíð Oddsson var í útvarpi í kvöld. Frísklegur og beittur sem fyrr. Minnti á gamla og langoftast góða daga. Yfirburðamaður. Þó er eitt sem vefst aðeins fyrir mér.
Er eðlilegt að hann í þeirri stöðu sem hann er í sé að úttala sig um allskonar pólitísk álitamál? Pólitískt skipaður embættismaður. Hef miklar efasemdir um það. Ekki er hann að gera Geir neinn greiða með þessu.
Hvað er hann að vilja uppá dekk núna?
Röggi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2007 | 20:14
Öllu snúið á haus.
Nei, það er ekki sjálfgefið að bankinn samþykki það sagði blessaður drengurinn. En það er sjálfgefið að bankinn samþykki það ekki. Örugglega hægt að finna sanngirnisrök fyrir þessari ákvörðun en mér líkar þetta samt ekki.
Fylgir lánið ekki eigninni eða hvað, oft til 40 ára. Svolítið sérstakt að breyta þessu án þess að færa nein haldbær rök fyrir. Nú er það kúninn sem mótmælir og þarf að sannfæra bankann og restina af heiminum um að breytingin sé óréttmæt.
Er þessu ekki snúið á haus?
Röggi.
|
Breytt kjör við yfirtöku íbúðalána Kaupþings banka |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.11.2007 | 17:04
Rúnar spyr hvort mogginn hafi ekki áhuga á körfubolta.
Mér eru málefni körfuboltans hugleikin. Í stóru og smáu. Finnst eðlilega að allir hljóti að sjá það sama og ég í körfuboltanum. þannig gerast kaupin bara ekki á eyrinni.
Nú er Rúnar vinur minn og körfukall að skrifa pistil til íþróttaritstjóra moggans vegna þess að blaðið virðist ekki gera okkar íþrótt nógu hátt undir höfði, stundum. Áhugaverð lesning að mörgu leiti. Við sem erum alin upp við lestur moggans höfum oft litið á blaðið eins og stofnun. Ríkisstofnun sem hægt er að gera kröfur til.
Eins og kröfur um jafnrétti og þannig. Allir fái það sem þeim ber í réttu hlutfalli við áhuga almennings og umfang allt. Kannski eru þessar kröfur ekki sanngjarnar eða raunhæfar. Þeir sem eiga blaðið ráða þessu auðvitað bara sjálfir. Þeir ráða sér rítstjóra sem tekur ritstjórnarlegar ákvarðanir.
Allt er það eðlilegt, en það er til marks um það hversu miklar mætur margir hafa haft á mogganum að menn gera samt hiklaust kröfur um fagleg vinnubrögð þar þó menn séu tilbúnir í afsláttarkjör annarsstaðar.
Ég vona að mogginn haldi áfram að vera það blað sem ég les fyrst á morgnana eins og ég hef gert alla tíð og ekki síst vegna íþróttafréttanna. En þá má blaðið ekki enda eins og náttrtöll sem trúir því að það sem einu sinni var verði eilíft.
rungis.blog.is
Röggi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2007 | 15:28
Frelsi er gott.
Síðan hvenær varð frelsi vont mál? Vinstri menn og konur samtímans hrækja þessu orði útúr sér. Auðvitað er fátt algerlega gott og flesta hluti er hægt að fara illa með. Hvernig getur frelsi einstaklings verið slæmt mál?
Ég get alveg séð fyrir mér að einstaklingar og jafnvel hópar geti misnotað frelsið. Þá er brugðist við því. Í kringum frelsið verður að sjálfsögðu að verað til löggjöf sem verndar aðra fyrir misnotkun frelsisins. Til þess er löggjafinn og við erum alltaf að reyna að bæta umgjörðina, læra af reynslunni og mistökunum.
En við hættum ekki við að aðhyllast frelsi einstaklings þó eitthvað fari ekki alltaf strax á besta veg. Hver er andstæðan við frelsi? Höft kannski. Er styrkur í þannig stjórnarfari? Hvar hefur það reynst vel? Boð og bönn hjálpa þau alltaf?
Geta stjórnvöld og embættismenn alltaf sagt okkur hvað er gott og rétt og komið í veg fyrir mistök okkar? Frelsi andans er það líka vont? Frelsi til að gera mistök. Hver er betur til þess fallinn að taka grundvallarákvarðanir um mína framtíð en ég sjálfur?
Hvernig væri að forræðishyggjufólkið leiddi hugann að sögunni. Einu gildir hvort farið er austur fyrir fallið járntjaldið eða til Afriku og sannarlega víðar. Þar hafa einstaklngar og þjóðir gengið í gegnum hreinar hörmungar vegna þess að frelsið var ekki til staðar. Hvorki til huga eða handar.
Allt er þó gott í hófi. Er alls ekki að tala um stjórnleysi enda má á milli vera. En ég held að það fólk sem nú tekur þetta orð, frelsi, og gerir það að skammaryrði ætti að hugsa þetta dýpra. Við höfum það gott og eigum eftir að hafa það betra og það byggist ekki síst á því að frelsi á öllum sviðum hefur verið aukið. Því verður varla á móti mælt.
Röggi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2007 | 13:01
Feðgar svara fyrir sig.
Það fór ekki svo að bónusfeðgar svöruðu ekki fyrir sig því það gerðu þeir í blaðinu sínu í morgun. Alsaklausir eins og ávallt en að þessu sinni held ég að færri en fleiri trúi þeim blessuðum. Enda blandast stjórnmál ekki inní þetta og því er öllum óhætt að taka eðlilega afstöðu.
Þeir gátu svo ekki stillt sig um að beita aðferðafræðinni sem notuð var árum saman í dómsmálum þeirra. Reyna að klína skít á persónur og leikendur. Óþverrabragð sem sýnir enn og aftur hvernig menn þetta eru.
Framkvæmdastjóri ASÍ kemst að því að kaupás, sem hann vann einu sinni hjá, er að stunda óvönduð viðskipti en samt telja þeir sig geta nuddað honum uppúr því að hafa unnið þar. Hvurslags röksemdafærsla er þetta?
Og ganga þá væntanlega út frá því að þeirra eigin framburður mótist af hlutleysi. Riddarar sannleikans. Eða þannig....
Röggi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)


gunnarfreyr
sigurdurkari
bjarnihardar
hannesgi
steinunnolina
evathor
baldurkr
skallinn
heidathord
pallvil
siggiulfars
ellasprella
markusth
birgitta
einherji
hrannarb
1962
vglilja
ithrottir
aronb
malacai
skessa
